Áhrif jarðskjálfta geta verið misjöfn sumir skjálftar sjást aðeins á jarðskjálftamælum en sumir eru svo stórir að mannvirki geta skemmst, jörðin getur rifnað og flóðbylgjur og skriðuföll geta farið af stað. Jarðskorpuflekarnir tengjast um alla jörðina og getur einn skjálfti komið af stað keðjuverkun víða í heiminum. Um 85% jarðskjálfta verða á flekamótum Kyrrahafsflekans.